8.1.2018

Ljósmyndir frá þingsetningu

Ljósmyndir frá setningu 148. löggjafarþings 14. desember 2017. Þingsetningarathöfnin hófst kl. 13.30  með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Séra Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur á Reynivöllum í Kjalarnessprófastsdæmi, prédikaði og séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. 

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setti Alþingi, 148. löggjafarþing, og að því loknu tók starfsaldursforseti, Steingrímur J. Sigfússon, við fundarstjórn hann var svo kjörinn forseti Alþingis.

Hlutað var um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2018 útbýtt. Að kvöldi þingsetningardags fóru fram umræður um stefnuræðu forsætisráðherra.

Þingsetning 14. desember 2017

©Bragi Þór Jósefsson.